Erlendar hugmyndir um endurgerð borga hafa hreinlega mistekist hérlendis og leitt af sér gallaða þéttingarstefnu.
Þétting byggðar á kolrangri leið
Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun Íslands, segir tilefni til að staldra við og endurmeta margt í þéttingu byggðar. Þá ekki síst niðurrif eldri húsa.
Tilefnið er að nokkrar áberandi byggingar hafa verið rifnar í borginni að undanförnu til að rýma fyrir nýbyggingum eða þéttari byggð. Þá meðal annars byggingar Rafmagnsveitu Reykjavíkur í Ármúla, Morgunblaðshúsið í Kringlunni, „Dósaverksmiðjan“ í Borgartúni 1 og nú síðast hús kennt við hópferðafyrirtækið Guðmund Jónasson í Borgartúni 34-36. Þá er lokaáfanginn í niðurrifi á Heklureitnum áformaður síðar á þessu ári.





