6 grunnskólar og 14 leikskólar lokaðir að hluta eða öllu leyti! Hár kostnaður
Sex grunnskólar og 14 leikskólar í vanda
Alls eru sex grunnskólabyggingar Reykjavíkurborgar lokaðar að hluta eða eru í slæmu ástandi og ekki er staðan betri þegar kemur að leikskólahúsnæði, en þar er um að ræða 14 byggingar í þessari stöðu.
Þetta má ráða af svari sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs borgarinnar við fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í ráðinu.
Í fyrirspurninni var óskað eftir yfirliti yfir þá grunn- og leikskóla sem lokaðir verða á næstunni vegna framkvæmda við viðhald, sem og hversu lengi ætlað er að lokunin standi yfir.





