Kostnaðurinn stendur nú í 3,8 milljörðum og verkinu er ekki enn lokið og leikskólinn ekki opnaður! Til samanburðar kostar fullbúinn 100 barna leikskóli um 1,2-1,4 milljarða. Hver ber ábyrgðina á að þessi leikskólabygging kosti orðið meira en þrír nýjir leikskólar og muni væntanlega kosta eins og að byggja fjóra nýja leikskóla?
Virtu ekki viðvaranir um burðarþol
Í lok árs 2021 festi Reykjavíkurborg kaup á úr sér gengnu verslunarhúsnæði Evu með það fyrir augum að nýta það til stækkunar leikskólans Brákarborgar. Ráðist var í breytingar á húsnæðinu sem kostuðu tæplega 1,3 milljarða króna og flutti leikskólinn í húsnæðið í ágústmánuði 2022.
Tæpum tveimur árum síðar fóru alvarlegir byggingargallar í húsnæðinu að koma í ljós og hófust viðgerðir síðsumars 2024. Þá var leikskólanum lokað og starfsemin til bráðabirgða flutt í Ármúla.
Vonir höfðu staðið til að leikskólinn myndi verða opnaður aftur að loknu sumarleyfi í ár en í ágúst var foreldrum tilkynnt að svo yrði ekki og að til stæði að ljúka framkvæmdum í seinni hluta október.
- Það kostar skv. upplýsingum með leit á gervigreindinni um 1,2-1,4 milljarða að byggja fullbúinn 100 barna leikskóla í Reykjavík.
- Borgin ákvað að endurbyggja gamalt og illa farið verslunarhúsnæði við Holtaveg/Kleppsveg 150-152, í 104 Reykjavík og breyta því í leikskólann Brákarborg. Settu gras og gróður á þakið á húsinu og borgarfulltúrar meirihlutans veittu sjálfum sér verðlaun og viðurkenningu fyrir með viðhöfn og kölluðu „Grænu skófluna.“ Sjá meðfylgjandi frétt af vef Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg fær Grænu skófluna fyrir Brákarborg | Reykjavik
Þetta gamla verslunarhús var ekki heldur friðað og því ekkert sem réttlætti að reyna að byggja inni þessu húsi! Auk þess sem það var svo illa byggt að þakið var við það að hrynja undan þyngdinni á grasinu og jarðveginum sem þau settu á þakið. Því hefur ekki verið hægt að hafa fólk í húsinu því hætta er á því að það geti hrunið!
Gríðarlegur kostnaður hefur því farið í vinnu við að styrka veggi o.fl.
- Nú stendur kostnaðurinn við þessa endurgerð í 3,8 milljöðrum og er ekki enn lokið.
- Fyrir þessa upphæð hefði verið hægt að byggja meira en 3 nýja leikskóla og sennilega 4 því ekki sér fyrir endann á þessari glórulausu framkvæmd. Tær snilld og vel farið með skattpeninga borgarbúa eð hitt þó heldur. Ekki er heldur vitað hvenær leikskólinn mun opna því að enn er margt eftir!
Er hægt að klúðra hlutunum meira en þetta?
Athugið
Greinar sem hafa verið skrifaðar í fjölmiðla og margoft verið vísað í.
Tekið skal fram að greinarhöfundar tengjast á engan hátt Góðan daginn framboðinu.





