Stefnumálin

Heim|Stefnumálin

Góðan daginn, framboðið vill opna málefnalega umræðu sem byggir á rökum og traustum gögnum. Við viljum eiga raunverulegt samráð við íbúa og funda reglulega með fólki í hverfunum.

Hverfi Reykjavíkur eru í raun hvert um sig stærri en flest bæjarfélög á Íslandi. Samt hafa íbúar þeirra oft takmarkaða aðkomu að ákvörðunum um sitt nærsamfélag. Þessu viljum við breyta. Ekki nóg með að núverandi meirihluti hafi ekki hlustað nægilega á vilja íbúa, heldur hefur hann ítrekað tekið ákvarðanir sem ganga þvert á vilja þeirra – sérstaklega í skóla- og skipulagsmálum.

Við ætlum að efla lýðræðið í hverfunum, forgangsraða verkefnum í samræmi við vilja íbúa og setja skýr, mælanleg markmið í öllum helstu málaflokkum.

Helstu áherslur nýs framboðs eru m.a.:
Stefnumálin

Þjónusta við borgarbúa

Mikilvægasta hlutverk Reykjavíkurborgar er að veita íbúum góða og áreiðanlega þjónustu. Við viljum setja þjónustuna í forgang og tryggja að hún taki mið af raunverulegum þörfum borgarbúa.

Til að mæta óskum íbúa viljum við gera reglulega þjónustukannanir. 
Við munum mæla árangur þjónustunnar markvisst og birta niðurstöður með gagnsæjum hætti. Þetta á við um alla þjónustuþætti borgarinnar, þar á meðal meðferð ábendinga og erinda frá íbúum.

Fjármál og ábyrg stjórnsýsla

Við viljum einfalda skipulag borgarinnar, hagræða í rekstri og draga úr skuldasöfnun. Sérstök áhersla verður lögð á öryggi í rekstri og traustar stjórnsýsluaðferðir.

Það sem þarf til að bæta rekstur borgarinnar er skýr stefna, mælanleg markmið og hæft fólk til verka.

G-listi Góða dagsins hefur frambjóðendur sem geta náð árangri fyrir borgarbúa.

Þetta eru lykilforsendur sjálfbærs rekstrar og betri þjónustu til lengri tíma – í þágu komandi kynslóða.

Róum umræðuna

Umræðan hefur að okkar mati verið of fljót að fara í skotgrafirnar og ekki virðist vera grundöllur fyrir samræður eða samvinnu milli ólíkra flokka í borgarstjórn.

Við viljum róa umræðuna, þannig getum við náð að tala saman og finna í sameiningu bestu lausnina í hverju verkefni.

Betri vinnustaður

Árangur borgarinnar byggir á öflugu starfsfólki. Við viljum skapa vinnuumhverfi þar sem starfsfólk nýtur trausts, stuðnings og góðra starfsskilyrða.
Góður vinnustaður er forsenda góðrar þjónustu.

Leikskólamál

Við viljum lögbinda leikskólaþjónustu.

Við vitum að það tekur tíma að ná því í gegn og þangað til viljum við bjóða foreldrum sem ekki koma barni sínu á leikskóla við 12 mánaða aldur heimgreiðslu þangað til barnið kemst á leikskóla.

Grunnskólamál

Endurskoða skóla án aðgreiningar, meta árangurinn og taka svo upplýsta ákvörðun um breyting.

Grunnskólinn er ein mikilvægasta þjónusta borgarinnar og hefur afgerandi áhrif á framtíð samfélagsins.

Við viljum styrkja stuðning við nemendur með fjölbreyttan bakgrunn, þar á meðal þá sem ekki hafa íslensku að móðurmáli.

Auðvelda þarf aðgang efnaminni og erlendra barna að skipulögðu frístundastarfi.

Fjölga skólaúrræðum fyrir fötluð börn sem þess óska.

Umferðarmál

Mikill ágreiningur er um leiðir í samgöngum og viljum við róa umræðuna og ræða okkur niður á bestu lausnina með öll gögn fyrir framan okkur.

En það vantar ýtarlegri upplýsingar varðandi skipulag umferðamála á höfuðborgarsvæðinu.

Án þeirra er erfitt að taka upplýsta ákvörðun.

Áríðandi er orðið að bæta samgönguvandamál bæði fyrir bíla og almenningssamgöngur.

Við viljum að íbúar geti valið sér raunhæfa samgöngumáta.

Einnig viljum við einfalda og bæta fyrirkomulag bílastæðagjalda.

Skipulag hverfa og þétting byggðar

Við viljum tryggja raunhæft skipulag hverfa með að lágmarki 1,5 bílastæði á hverja íbúð, nema í undatekningartilvikum og heimila einnig uppbyggingu bílastæðahúsa þar sem það á við. Við viljum jafnframt horfa aftur til eldri viðmiða um birtu í íbúðum til að bæta lífsgæði.
Þétting byggðar á aðeins að eiga sér stað í góðri sátt við íbúa og innviði viðkomandi hverfa.

Atvinnulífið

Við viljum vinna með atvinnulífinu og finna lóður fyrir atvinnustarfsemi og reyna að stöðva flutning fyrirtækja úr Reykjavík.

Einfald þarf regluverk atvinnulífsins og auðvelda aðilum að stofna fyrirtæki í Reykjavík.

Menning

Við viljum skemmtilega borg og fjölbreytta menningu. Vera opin og jákvæð fyrir því að skapa rými og ýta undir sköpun. Við viljum bæta þann grunn sem fyrir er svo íbúar geti blómstrað.

Við viljum fjölga góðum dögum í Reykavík og gott menningarlíf er stór þáttur í því.

Lýðheilsa

Efla fræðslu og forvarnir og styðja við lýðheilsu í víðum skilningi.

Við viljum fjölga góðum dögum í Reykavík. Góð lýðheilsa þar lykilatriði. Heilbrigður einstaklingur á þúsund óskir, sjúkur á eina ósk.

Fatlaðir

Virða þarf óskir fatlaðra og hafa þau með í ráðum þegar ákvarðanir eru teknar.

Fjölga þarf skólaúrræðum fyrir fötluð börn sem þess óska.

Auka þarf sveigjanleika í atvinnumálum fatlaðra og hjálpa þeim sem þess óska og geta að finna störf við hæfi.

Íþróttir

Ástundun í þrótta er ein besta leiðin að stunda heilbrigt líferni. Oft er íþróttafélag í hverfinu stærsti þátturinn í að sameina hverfið. Félagslegi þátturinn er mjög mikilvægur, sérstaklega hjá unga fólkinu.

Við leggjum því mikið upp úr öflugu íþróttastarfi og viljum leggja okkar á vogarskálarnar til efla það.

Golf

Neyðarástand er í golfmálum í Reykjavík. Golf er vinsælasta íþrótt fullorðna á Íslandi og í dag er Golfklúbbur Reykjavíkur uppseldur og með þúsundir á biðlista. 

Strax þarf að fara í vinnu með GR við að finna land fyrir 36 holu golfvöll. Síðan 2008 er búið að benda á landsvæði og óska eftir viðræðum án nokkurs árangurs.

Þetta er langtíma fjárfesting þar sem golfvellir úreldast ekki heldur verða þeir mörg hundruð ára gamlir.

Eldri borgarar

Mikilvægt er að eiga gott samtal við eldri borgara um hverjar þarfir þeirra eru.

Það munum við m.a. gera með reglulegum viðhorfskönnunum.

Við viljum styðja við það að fólk geti búið sem lengst heima og þá með þjónustu.

Mikilvægt er að sporna við félagslegri einangrun eldra fólks.

Við viljum eiga samtal við eldri borgara um breytingar á húsnæðisþörf þeirra á efri árum.