Vertu með

Heim|Vertu með

Okkur vantar öflugt fólk

Brýn þörf er á að öflugt fólk sem hefur náð góðum árangri í starfi í krefjandi verkefnum gefi kost á sér.
Við viljum virkja sem flesta til samstarfs og virkja fleiri en borgarfulltrúa til áhrifa í borgarinni.

Dæmi um þannig reynslu er:

  • Verkefnastjórnun
  • Ferlagreiningar og endurhögun vinnuferla
  • Samingagerð
  • Fjármála og rekstrarreynsla
  • Hagræðing og endurskipulagning
  • Stjórnunar- og ábyrgðarstörf
  • Arkitektar, lýðheilsufræðingar o.fl.

Endilega hafði samband ef þú vilt hafa áhrif.

Ath. Þú þarft  ekki að vera þekktur fv. knattspyrnumaður, leikari eða sjónvarpsmaður til að geta haft áhrif.  Við viljum vinna með fólki sem hefur reynslu af málaflokkunum og veit hvernig hægt er að bæta rekstur borgarinnar.

Við sem að framboðinu standa erum að setja saman öfluga framboðslita og höfum pláss til að bæta við fleirum og viljum gjarnan fá fólk sem vill vera ofarlega á lista og láta til sín taka. Sæti ofarlega á lista gæti t.d. verið í boði fyrir þau sem þess óska ef um reynt og öflug fólk er að ræða.

Hafið þið áhuga á að bætast í hópinn og bjóða fram krafta ykkar þá hvetjum við ykkur til að senda inn ferilskrá (CV) ásamt kynningarbréfi á [email protected]. Í kynningarbréfinu er nauðsynleg að þið takið fram hvers vegna þið gefið kost á ykkur og hvar ykkar styrkleiki og reynsla liggur helst.  Við viljum vinna með sem flestum.

Auðvitað er svo skilyrði að þeir sé gefa kost á sér hafi hreint sakavottorð og gott mannorð.

Allar umsóknir og fyrirspurnir eru í trúnaði og því um að gera að heyra í Torfa Markússyni í síma 821 1145 eða senda póst á netfangið [email protected].

Við ætlum að hafa kosningabaráttuna jákvæða og skemmtilega. Þetta verður gaman!

Viltu vera með

Sendu okkur skilaboð.