Félag eldri boragar í Reykjavík

Fjölmennur fundur FEB með framboðum til Borgarstjórnakosninga 2026 var haldinn 17. apríl. Fyrir hönd Góðan daginn xG mætti Hjördís Dröfn sem skipar annað sætið og lýsti hún stefnu Góðan daginn xG í málefnum eldri borgara í Reykjavík. Hjördís hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri, í dag starfar hún sem leiðtoga- og teymisþjálfi. Hún hefur …

Fjölmennur fundur FEB með framboðum til Borgarstjórnakosninga 2026 var haldinn 17. apríl. Fyrir hönd Góðan daginn xG mætti Hjördís Dröfn sem skipar annað sætið og lýsti hún stefnu Góðan daginn xG í málefnum eldri borgara í Reykjavík. Hjördís hefur víðtæka reynslu af stjórnun og rekstri, í dag starfar hún sem leiðtoga- og teymisþjálfi. Hún hefur einnig mikla reynslu af starfi með öldruðum, bæði í sínu nánasta umhverfi og eins í gegnum starfs sitt undan farin ár.

Góðan daginn xG framboðið leggur mikla áherslu á mikilvægi þess að eiga gott samtal við eldri borgara um hverjar þarfir þeirra eru.

Það munum við gera með reglulegum viðhorfskönnunum og bjóða félagi eldriborgara að hafa virkan aðgang að ákvarðanatöku um þeirra mál.

Við viljum styðja við það að fólk geti búið sem lengst heima og þá með þjónustu.

Mikilvægt er að sporna við félagslegri einangrun eldra fólks.

Við viljum eiga samtal við eldri borgara um breytingar á húsnæðisþörf þeirra á efri árum.

Í myndbandinu frá fundinum má heyra nánar hvað Hjördís Dröfn hafði fram að færa á fundinum.