Ingimar Þór
Friðriksson
Gagnsæi, þjónusta og góður rekstur
„Yfirburða reynsla og þekking á því hvernig upplýsingatækni getur bætt þjónustu við íbúa og bætt rekstur sveitarfélaga.”
Fimm samtöl við Ingimar
Reynsla úr þremur geirum
Árangursríkur stjórnandi með yfirgripsmikla reynslu úr sveitarfélögum, háskólasamfélagi og fjármálageiranum. Víðtæk reynsla af stefnumótun og gerð stefnumiðaðra fjárhagsáætlana.
Mikil þekking á rekstri sveitarfélaga — bæði hvað varðar fjármál og stjórnsýslu — auk sterks tengslanets og yfirgripsmikillar þekkingar á sameiginlegum rekstri hins opinbera.
37 ár sem stjórnandi
-
2025 – Núverandi
Betri lausnir ehf.
Sjálfstæður ráðgjafi og verkefnastjóri — ráðgjöf og þróun hugbúnaðar, m.a. fyrir sveitarfélög
-
2011 – 2025
Kópavogsbær
Forstöðumaður upplýsingatækni og þjónustuvers — hagræðingarverkefni og stafræn umbreyting
-
2004 – 2011
Betri lausnir ehf. — Hugbúnaðarhús
Framkvæmdastjóri og eigandi
-
2000 – 2004
Háskólinn í Reykjavík
Framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs
-
1997 – 2000
FBA — Fjárfestingarbanki atvinnulífsins
Forstöðumaður upplýsingatækni og gæðamála
-
1989 – 1997
Iðnlánasjóður
Deildarstjóri upplýsingartækni
Nefnda- og stjórnarseta
Til að bæta borgina þarf að hlusta — á borgarbúa, sérfræðinga og samstarfsfólk. Ingimar hefur setið í fjölmörgum nefndum og stjórnum þar sem reynir á samtal og samstarf, bæði í þágu hverfis síns og í víðari rekstri opinberra og einkaaðila.
2022 – 2025
Íbúaráð Grafarvogs
Beint samtal við íbúa hverfisins
2024 – 2025
Formaður úttektar á umferðaöryggismálum Grafarvogs
Hagsmunir hverfisbúa á dagskrá
2021 – 2025
Stafrænt ráð sveitarfélaga
Samband íslenskra sveitarfélaga
2023 – 2025
Stjórn fagstaðlaráðs í upplýsingatækni (FUT)
2001–2002 · 2003–2008
Stjórn Rannsóknar- og háskólanets Íslands (RHnet)
2006 – 2009
Stjórn Veitu fjármálafélags
Seinna sameinað Momentum (nú Motus)
1997 – 1998
Formaður verkefnastjórnar um sameiningu tölvukerfa Fiskveiðasjóðs, Iðnlánasjóðs og Iðnþróunarsjóðs
Sameining þriggja opinberra sjóða — beint sambærilegt verkefni og bíður borgarstjórnar
Hvað leggur hann áherslu á
Gagnsæi
Opið bókhald og gott aðgengi að upplýsingum borgarinnar — fyrir borgarfulltrúa, fjölmiðla og almenning.
Þjónusta
Góð þjónusta við borgarbúa er mælikvarði á árangur. Allir starfsmenn borgarinnar eiga að vinna að sömu markmiðum.
Mælingar
Rafrænar mælingar á þjónustustigi sem grunnur fyrir upplýstar ákvarðanir og stöðugar umbætur.