Hjördís DröfnVilhjálmsdóttir
Mannlegi þátturinn, ábyrgur rekstur og skilvirkar ákvarðanir
„Líðan starfsfólks er grundvöllur framfara.”
Þrjú innslög með Hjördísi
Reynsla úr þremur geirum
Áratugareynsla sem stjórnandi, ráðgjafi og greinandi — með bakgrunn úr fjármálakerfinu, opinberri stjórnsýslu og leiðtoga- og teymisþjálfun.
Hjördís hóf feril sinn sem hagfræðingur hjá Seðlabanka Íslands og starfaði síðar sem sérfræðingur hjá Glitni. Eftir hrun var hún ópólitískur ráðgjafi fjármálaráðherra og leiddi næst endurskipulagningu eigna hjá Landsbankanum á árunum 2010–2012, þar sem hennar fólk bar ábyrgð á endurskipulagningu fyrirtækja, lögfræðiinnheimtu, fullnustueignum og umsýslu þeirra.
Hennar kjarnafærni er breytinga- og krísustjórnun og hún hefur margþætta reynslu af stefnumótun, innleiðingu breytinga og endurskipulagningu í víðu samhengi. Hún hefur tvívegis verið skipuð af Alþingi sem varamaður í Fjármálaráð þar sem helsta ábyrgðarsvið hennar voru fjármál sveitarfélaga. Í dag rekur hún eigin starfsemi sem leiðtoga- og teymisþjálfi.
Í gegnum ferilinn hefur Hjördís lært hversu mikilvægur mannlegi þátturinn er og leggur áherslu á að hugað sé að honum strax í upphafi allrar umbótavinnu. Hún vill sjá sjálfbæran fjárhag borgarinnar, bætta líðan starfsfólks og gæði ákvörðunartöku — og er tilbúin að beita sér af fullum krafti veiti borgarbúar henni umboð til þess.
26 ár sem stjórnandi og ráðgjafi
-
2021 – Núverandi
Taktu flugið
Leiðtoga- og teymisþjálfi — ACC-vottuð frá ICF
-
2022 – 2023
Profectus ehf.
Kennari í markþjálfun, leiðtoga- og teymisþjálfun
-
2010 – 2012
Landsbankinn
Framkvæmdastjóri Endurskipulagningar eigna + Bíla- og tækjafjármögnunar — sameining SP fjármögnunar og Avant inn í bankann
-
2009 – 2010
Fjármálaráðuneytið
Ópólitískur ráðgjafi fjármálaráðherra — fallandi fjármálafyrirtæki, mótun eignarhalds og samskipti við erlenda eftirlitsaðila og kröfuhafa
-
2006 – 2008
Íslandsbanki / Glitnir
Sérfræðingur
-
1999 – 2005
Seðlabanki Íslands
Hagfræðingur
Reynsla í verki
Hjördís hefur leitt umfangsmikil verkefni í endurskipulagningu, fjármálum og stjórnarháttum — verkefni sem snerta beint þá áskorun sem bíður næstu borgarstjórnar.
2010 – 2012
Endurskipulagning eigna · Landsbankinn
Sameining tveggja fallinna fjármálafyrirtækja inn í bankann — beint sambærilegt við endurskipulagningu og sameiningu eininga sem bíður borgarstjórnar.
2016 – 2019
Fjármálaráð · skipuð af Alþingi
Helsta ábyrgðarsvið: fjármál sveitarfélaga. Beint mat á þeirri fjármálastjórn sem nú þarf að beita í Reykjavík.
2013 – 2022
Stjórn Regins hf. + formaður endurskoðunarnefndar í 10 ár
2017 – 2021
Stjórnarformaður Listdansskóla Íslands ses.
2010 – 2012
Stjórn Hömla ehf.
Dótturfélag Landsbankans um eignaumsýslu
2019 – 2025
FKA — fræðslunefnd og alþjóðanefnd
Félag kvenna í atvinnulífinu
Hvað leggur hún áherslu á
Líðan starfsfólks
Líðan starfsfólks er grundvöllur framfara. Vinnustaðamenning sem nær frá borgarfulltrúum til alls starfsfólks borgarinnar.
Sjálfbær fjárhagur
Forsenda þess að unnt sé að viðhalda þjónustustigi til lengri tíma — ábyrg fjármálastjórn og besta nýting fjármuna.
Skilvirkar ákvarðanir
Gæði ákvörðunartöku ræður öllu. Upplýstar ákvarðanir byggðar á þekkingu, reynslu og mati á áhrifum.
Stuðningur skiptir öllu máli
Framboð án flokkavélar reiðir sig á borgarbúa. Kynntu þér stefnumálin og styrktu framboðið ef þú vilt sjá nýja nálgun í borgarstjórn.