G-listinn · Kosningar 16. maí 2026

Framboðslistinn

Óháð fólk með víðtæka reynslu og þekkingu — tilbúið til að taka að sér ábyrgðina sem fylgir borgarstjórn.

Forystan

Þau leiða listann

Ingimar Þór Friðriksson
1. sæti

Ingimar Þór Friðriksson

Tölvunarfræðingur · MBA

Yfir tveggja áratuga reynsla af rekstri sveitarfélaga. Forstöðumaður upplýsingatækni og þjónustuvers hjá Kópavogsbæ í 14 ár og kennari við Háskólann í Reykjavík í 11 ár. Vill aukið gagnsæi, betri þjónustu við borgarbúa og rafrænar mælingar á þjónustustigi.

Hvers vegna Torfi valdi Ingimar

„Yfirburða reynsla og þekking á því hvernig upplýsingatækni getur bætt þjónustu við íbúa og bætt rekstur sveitarfélaga. Okkur Reykvíkingum er mjög mikilvægt að Ingimar verði kosinn í borgarstjórn.”

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir
2. sæti

Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir

Hagfræðingur · Leiðtogaþjálfi

Djúp reynsla af breytingastjórnun, fjármálum og endurskipulagningu stórra rekstrareininga. Ópólitískur ráðgjafi fjármálaráðherra eftir hrun og framkvæmdastjóri endurskipulagningar eigna hjá Landsbankanum 2010–2012. Leggur áherslu á sjálfbæran fjárhag og líðan starfsfólks.

Hvers vegna Torfi valdi Hjördísi

„Reynsla Hjördísar af breytingastjórnun, rekstri, fjármálum og endurskipulagningu stórra rekstrareininga mun nýtast einstaklega vel í þeim flókna rekstri sem um er að ræða í Reykjavík.”

Á listanum

Sterkt bakland

Torfi Markússon
3. sæti

Torfi Markússon

Rekstrarfræðingur · Ráðningar

Torfi hefur starfað um áratugabil við ráðningar og mannauðsmál. Síðastliðin 16 ár hefur hann verið einn af eigendum og ráðgjöfum Intellecta en lét af störfum í mars sl. og seldi hlut sinn í fyrirtækinu. Hann er rekstrarfræðingur að mennt. Þar sem Torfi vill sjá breyttar áherslur í borginni þá ákvað hann að hafa frumkvæði um að setja saman óháð framboð til borgarstjórnarkosninga og hvetja hæft fólk til að gefa kost á sér.

Samgöngumálin brenna á Torfa og eru stærsta ástæða þess að hann lagði af stað í þessa vegferð. Hann vill göng í stað Sundabrautar sem er bæði öruggari og umhverfisvænni ferðamáti en brú yfir sundin. Aðrar áherslur hjá honum eru m.a. á greiðari umferð og næg bílastæði við nýbyggingar sem og næg bílastæði í öðrum eldri hverfum. Torfi styður að sjálfsögðu góðar almenningsamgöngur og það góða er að það er hægt að útfæra þau mál mun betur en til stendur í dag.

Torfi um sjálfan sig

„Í 35 ár hef ég starfað í einkageiranum við ráðningar í sérfræði- og stjórnunarstörf. Fyrst ætlaði ég eingöngu að manna sterkan framboðslista en var beðinn um að taka sæti ofarlega og nýt mín því vel í 3. sæti.”

Nathalia B. Tómasdóttir
4. sæti

Nathalia B. Tómasdóttir

Stofnandi · Ráðgjöf & markaðsmál

Nathalia hefur starfað um árabil við rekstur, ráðgjöf og markaðsmál. Hún er stofnandi og eigandi NIBA ehf. Í störfum sínum hefur hún komið að fjölbreyttum verkefnum við að efla ímynd aðila, móta skýra stefnu og skapa ný tækifæri til vaxtar.

Sem einstaklingur með alþjóðlegan bakgrunn og víðtæka reynslu af því að byggja líf milli menningarheima hefur Nathalia sterkan skilning á stöðu fólks af erlendum uppruna, mikilvægi þátttöku og þeim tækifærum sem felast í fjölbreyttu samfélagi. Hún telur mikilvægt að hæfileikar, reynsla og framlag allra fái notið sín, óháð uppruna.

Nathalia telur að sterk samfélög byggist á gagnkvæmri virðingu, þátttöku og ábyrgð. Hún leggur áherslu á að þau sem setjast að í nýju landi fái tækifæri til að vaxa og blómstra. Það gera þau með því að læra tungumálið og samlagast samfélagi og gildum landsins.

Hvers vegna Torfi valdi Nathaliu

„Nathalia kom til Íslands 17 ára og kunni þá ekki orð í íslensku. Hún hefur verið mörgum erlendum einstaklingum sem hafa sest hér að góð fyrirmynd varðandi það að tileinka sér íslensku og vera virk í íslensku samfélagi.”

Jón L. Árnason
5. sæti

Jón L. Árnason

Viðskiptafræðingur · Framkvæmdastjóri

Jón hefur verið framkvæmdastjóri Lífsverks lífeyrissjóðs frá 2015. Um sl. áramót sameinuðust Lífsverk og Almenni lífeyrissjóðurinn og mun Jón starfa hjá sameinuðum sjóði fram á mitt ár. Áratuginn á undan starfaði Jón við eignastýringu í Kaupþingi og Arion banka, m.a. sem forstöðumaður einkabankaþjónustu og framkvæmdastjóri lífeyrissjóða í rekstri bankans. Jón er viðskiptafræðingur og með próf í verðbréfaviðskiptum. Hann er stórmeistari í skák og helgaði sig um tíma skáklistinni.

Jón telur að stjórn borgarinnar eigi að snúast um þjónustu við íbúana og bætt lífsgæði. Hann telur brýnt að hverfa frá núverandi stefnu í skipulags- og samgöngumálum sem séu komin í óefni. Hann telur að bæta þurfi verkferla við fjármálastjórn borgarinnar og gæti megi aðhalds án þess að það komi niður á þjónustu. Of mörg dæmi hafi verið um sóun fjármuna í einstökum verkefnum.

Hvers vegna Torfi valdi Jón

„Jón hefur átt einstaklega farsælan feril í atvinnulífinu og nýtur mikillar virðingar. Íslendingar eiga ekki marga heimsmeistara en Jón varð heimsmeistari í skák 17 ára og yngri árið 1977 og hefur verið þjóðþekktur síðan.”

Björn Jóhann Þórsson
6. sæti

Björn Jóhann Þórsson

Orkuverkfræðingur · Hugbúnaður

Björn starfar sem hugbúnaðarsérfræðingur hjá Fjársýslu ríkisins á sviði Umbóta og þróunar. Þar er hlutverk hans að bæði sjálfvirknivæða og einfalda verkferla. Hann er menntaður orkuverkfræðingur ásamt því að hafa tekið mörg námskeið í MBA og gerð hugbúnaðar og fjármálamódela. 105 er hverfið hans Björns. Þar ólst hann upp og býr í dag ásamt sambýliskonu.

Björn æfði frjálsar íþróttir í 13 ár hjá ÍR og fótbolta með Val. Í frístundum fylgist hann vel með íþróttum, spilar borðspil við fjölskyldu og vini og tölvuleikir fá einnig hluta af tíma hans. Hann er mikill keppnismaður, vinnusamur og með eindæmum úrræðagóður. Slíkir eiginleikar eiga eftir að nýtast vel þegar stefnt er að því að ná árangri í borgarstjórn.

Hvers vegna Torfi valdi Björn

„Björn Jóhann er frábær fulltrúi þeirrar kynslóðar sem á næstu árum tekur við ábyrgðar lykilhlutverkum í okkar samfélagi. Sjálfvirkni og stafrænar umbætur á sviði upplýsingatækni eru hans fag.”

Frambjóðendur Góða dagsins
16. maí 2026

Kjóstu G

Nýtt og ferskt framboð, óháð flokkum, með víðtæka reynslu og þekkingu. Kynntu þér stefnumálin og styddu framboðið.