Um framboðið
Góðan daginn er nýtt, óháð framboð til borgarstjórnar Reykjavíkur. Við erum stofnuð af fólki sem hefur áhyggjur af því hvernig ákvarðanir hafa verið teknar í borginni og trúir því að borgarbúar eigi betra skilið en flokkadrátt og illa ígrundaðar lausnir.
Markmið okkar er einfalt: að fá hæft, óháð fólk að borðinu og reka borgina eins og ábyrgt stórt fyrirtæki — með skýrri stefnu, mælanlegum markmiðum og hagsmuni borgarbúa að leiðarljósi.
Starf borgarfulltrúa er í raun ekki ólíkt starfi stjórnarmanns
- Lýðræðið blómstrar þegar hæft og drifið fólk stígur fram og býður sig fram til ábyrgðar. Það er mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að bjóða fram krafta sína í þágu borgarbúa.
- Við lítum á starf borgarfulltrúa eins og ábyrgðarstarf í stjórn stórs fyrirtækis. Þar skiptir máli að móta skýra stefnu, tryggja góðan rekstur og taka upplýstar ákvarðanir byggðar á þekkingu og reynslu.
- Borgarstjórn á að vinna saman að bestu niðurstöðu í hverju máli, setja fram mælanleg markmið, vinna náið með embættismönnum borgarinnar og hvetja alla starfsmenn borgarinnar til góðra verka.
- Við teljum að hefðbundnir stjórnmálaflokkar séu ekki forsenda fyrir góðri borgarstjórn – og geti jafnvel staðið í vegi fyrir bestu niðurstöðunni ef flokkslínur vega þyngra en hagsmunir borgarbúa.
- Áherslan á að vera skýr: Við viljum fá hæft fólkið að borðinu – óháða aðila og alls ekki endilega þá sem þekktastir eru.
- Ákvarðanir borgarstjórnar á síðasta kjörtímabili eru margar svo illa ígrundaðar að nú er nauðsynlegt að fá nýja og óháða aðila í borgarstjórn, aðila sem þurfa ekki að verja rangar ákvarðanir félaga sinna.
Ný nálgun við „ráðningu” borgarfulltrúa
Við horfum á þetta þannig að kjósendur velji á milli framboða og eru þannig með sínu atkvæði að „ráða” sína borgarfulltrúa.
Torfi Markússon einn reyndasti ráðningarsérfræðingur landsins hefur selt hlut sinn í Intellecta og látið þar af störfum. Þetta gerði Torfi meðal annars til að koma þessu framboði á laggirnar og taka að sér það mikilvæga verkefni að hvetja hæft fólk til að gefa kost á sér.
Í stað þess að treysta núverandi flokkum fyrir borginni þá telur Torfi rétt að bjóða borgarbúum upp á nýtt ferskt framboð með nýjum og hæfum frambjóðendum.
„Þetta er sennilega mest spennandi og mikilvægasta „ráðningaverkefnið” mitt frá upphafi. Ég nýtti ráðningarreynslu mína til að fá öflugt fólk til að gefa kost á sér og láta gott af sér leiða. Útkoman er ferskur valkostur með hæfum frambjóðendum. Nú er það kjósenda að velja 16. maí þann lista sem þeir treysta best.”
— Torfi Markússon
Torfi er menntaður rekstrarfræðingur. Starfaði hjá Intellecta sem sérfræðingur í ráðningum frá 2010 til mars 2026 auk þess að vera hluthafi í fyrirtækinu frá 2013.
Áður en Torfi hóf störf hjá Intellecta starfaði hann sem starfsmannastjóri á miklum uppbyggingatímum hjá TMSoftware og dótturfyrirtækjum þess á árunum 2000-2010. TMSoftware og dótturfyrirtæki störfuðu á sviði hugbúnaðargerðar með áherslu á lykilkerfi sinna viðskiptavina, ráðgjöf og þjónustu því tengt auk hýsingar- og kerfisreksturs. Frá 1991-1999 var Torfi ráðningastjóri hjá Ráðgarði. Það fyrirtæki starfaði á sviði ráðningaþjónustu í sérfræði-, stjórnunar- og ábyrgðarstörf auk stjórnunar- og rekstrarráðgjafar.
Nýtt og ferskt framboð
Við erum nýtt og ferskt framboð, óháð flokkum, með víðtæka reynslu og þekkingu.
Sjá frambjóðendur